Hraun, félag sumarbústaðaeigenda í Hraunborgum heldur úti þessari upplýsingasíðu.
Verkefni stjórnar Hrauns er að sjá um viðburði (gróðursetningardag og hitting sumarbústaðaeigenda um verslunarmannahelgi) á vegum félagsins yfir sumartímann, hliðið inn í Hraunborgir, snjómokstur, mold og almennan rekstur félagsins.
Gatnagerðamál í Hraunborgum eru á vegum landeigenda eða Sjómannadagsráðs.
Í Hraunborgum er þjónustumiðstöð, sundlaug, tjaldsvæði, leigubústaðir og golfvöllur, en tenglar á þá þjónstu má finna efst á síðunni.
Upplýsingar um færð á vegum, heimilissorp, gámastöð, mold, sveitafélagið (Gogg) o.s.frv. má finna undir upplýsingar.
Fyrirspurnir og ábendingar til stjórnar Hrauns sendist á netfangið: [email protected]
Saga Hraunborga:
Jörðin Hraunkot (Hraunborgir) við Kiðjabergsveg í Grímsnes- og Grafningshreppi var keypt af Sjómannadagsráði árið 1964 og er jörðin u.þ.b. 600 hektarar.
Til að mæta þörfum ferðamanna hefur verið lögð áhersla á uppbyggingu hjólhýsa- og tjaldsvæðis. Góð hreinlætisaðstaða er á staðnum ásamt góðu aðgengi fyrir fatlaða. Svæðið er mjög vinsælt meðal fjölskyldufólks, starfsmannafélaga og vinahópa. Þar eru einnig haldin fjölmörg ættarmót á ári hverju en í Hraunborgum er sérlega gott útivistarsvæði, bæði fyrir börn og fullorðna. Á svæðinu er m.a. minigolf, níu holu golfvöllur, leiktæki fyrir börn og útsýnisskífa þar sem hægt er að sjá hvernig landið liggur og læra helstu örnefni nágrennisins.
Þjónustumiðstöðin í Hraunborgum er með sundlaug og þremur heitum pottum. Sundlaugargestir geta notið sumarblíðunnar við góðar aðstæður, hvort sem þeir vilja busla í lauginni eða slaka á í heitu pottunum. Þjónustumiðstöðin er með yfirbyggðum sólpalli þar sem hægt er að slappa af og njóta góðra veitinga. Þeir sem vilja taka það rólega geta sest niður og haft það notalegt fyrir framan sjónvarpið inní þjónustumiðstöðinni.
Skemmtilegur 9 holu par 3 golfvöllur er fremst í Hraunborgum, sjá nánar www.gkh.is. Stöðugt er unnið að endurbótum á golfvellinum, heimasíða var sett í loftið nú í sumar og tré gróðursett á vegum Hrauns. Golfvöllurinn hentar vel bæði byrjendum sem og fjölskyldu- og vinahópum. Þá geta kylfingar, sem eru lengra komnir, ekki síður notið góðs af því að spila völlinn og æft sveifluna og stutta spilið.
Um 248 leigulóðir eru skipulagðar á svæðinu fyrir orlofshús stéttarfélaga sjómanna og sumarbústaði einstaklinga. Í dag eru 222 sumarbústaðir og hafa stéttarfélög sjómanna og önnur félagasamtök byggt 21 orlofshús.
Nýlokið er deiliskipulagi á 118 leigulóðum og þegar hefur verið ráðstafað úr því deiliskipulagi 18 lóðum. Í dag er verið að úthluta 27 leigulóðum við Bakkavík og Hofsvík. Er þá heildarfjöldi lóða 348.
Öllum landsmönnum er frjálst að sækja um þessar sumarbústaðalóðir.